Skilmálar vefverslunar

Vefverslunin Artis er rekin af Artis ehf., kt. 621121-0140, VSK-númer: 143147. Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur.


Afgreiðsla pantana


Allar pantanir eru afgreiddar 1-3 virkum dögum eftir að pöntun er staðfest.



Verð
Verð í vefverslun eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti.


Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og Artis áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.


Heimsending

Við bjóðum upp á fría heimsendingu (daginn eftir pöntun) ef pantað er fyrir 20.000 eða meira. Fyrir lægri upphæðir kostar heimsending 3000 kr. innan höfuðborgarsvæðisins. Afhending á höfuðborgarsvæðinu fer vanalega fram daginn eftir að pöntun hefur verið gerð, milli 17:00 – 20:00. Sendum einnig með pósti um land allt (sjá verðskrá á https://postur.is). Einnig er hægt að sækja á lager eftir samkomulagi. Við munum hafa samband innan 24 klst. eftir að pöntun hefur verið gerð.


Greiðsla pantana og öryggi
Með greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.


Millifærsla. Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja þá leið að millifæra. Millifærsla þarf að berast innan 2 klukkustunda frá pöntun.


Skilareglur
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru á netinu gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt (gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu). Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegu ástandi. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er gefin út inneignarnóta eða endurgreiðsla.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur.


Við bendum viðskiptavinum á að hafa samband við netverslun með tölvupósti á [email protected]


Útsala og önnur tilboð
Því miður er hvorki hægt að skipta né skila vöru sem keypt er á útsölu eða á öðru tilboði.


Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn.


Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila

X